|
03.12.2008 20:53:54 / helgi
Eftir smá blogg pásu þá ætla ég að skrifa nokkur orð hérna. Við erum flutt af Skúlagötunni og búum núna í Stöðulsholti, Inga er að vinna á Hraunborg, sem er leikskóli í Bifröst og ég er enn í KB. Í byrjun október þá var ég að dandalast í vinnunni og var kominn hátt hátt uppí stiga og var að sækja salt og allt í einu þá rann stiginn og ég datt um koll og hékk öfugur í stiganum og fékk svaka svaka SVAKA mikið meiddi á löppina og allur hel blár á báðum löppum, fór til Fúsa og hann sagði að ég yrði orðinn góður um kvöldið, en ekki var það svo gott því það byrjaði að grafa í sárinu og ég var frá vinnu í 6 vikur, gaman gaman. En núna er ég allur að koma til þótt sárið sé enn til staðar núna 2 mánuðum seinna.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, enda má maður ekki byrja af of miklum krafti.
Over and out.
»
13.06.2008 21:08:50 / helgi
Síðan að EM byrjaði hef ég nánast setið fastur fyrir framan Stevie the tv og fylgst með af miklum áhuga, áður en mótið byrjaði spáði ég Germany sigri, en eins og Richard og co. (Holland) hafa verið að spila þá er fátt sem getur stoppað þá, ég held reyndar að þeir tapi viljandi á móti Rúmeníu til þess að Frakkland og Ítalía detti út en síðan fara þeir bara alla leið og hampa tiltlinum. C U.
»
06.05.2008 19:51:13 / helgi
Já eins og titillinn gefur til kynna þá eigum við Inga mín afmæli í dag, erum búin að vera saman í 3 ár, það er nú töluvert, er það ekki? En það voru nú ekki mikil veisluhöld í tilefni dagsins þar sem ekki gefst mikill tími til þeirra í miðri viku, en það verður kannski gert eitthvað einhverja helgina, kannski farið út að borða eða eitthvað svoleiðis, en til hamingju með daginn elsku bestasta Ingan mín, ég elska þig. Já og til hamingju með það að þola mig svona lengi.
»
30.12.2007 20:42:41 / helgi
Ekki fór Liverpool leikurinn eins og ég hafði spáð, heldur endaði hann með markalausu jafntefli.
»
29.12.2007 21:54:32 / helgi
Dagur hefur verið frekar rólegur hjá prinsinum fagra, um klukkan 15 þá kíktum við á fótboltamót í íþróttahúsinu og var ágætis mæting þar, tók slatta af myndum og fór síðan bara heim. Og meira af bolta Man. Utd. tapaði í dag á móti íslendinga liðinu West Ham 2-1 þar sem Ronaldo klúðraði víti fyrir Utd. gott á hann. Á morgunn heimsækir Liverpool Man. City og verður það erfiður leikur fyrir mína menn, þar sem flestir varnamenn liðsins eru meiddir, en vona ég nú samt að þeir vinni leikinn, mín spá 1-2 Torres og Babel skora mörkin.
»
28.12.2007 23:54:30 / helgi
Rétt í þessu var ég að splæsa í tvær nýjar byssur, eina hálfsjálfvirka og eina pumpu, þannig að allir fuglar og önnur dýr eru beðin um að passa sig.
»
27.12.2007 16:43:52 / helgi
Í dag á háaldraður afi minn hann Helgi afmæli og er hann 78 ára gamall, ekkert smáræði það, já og óska ég honum innilega til hamingju með það.
»
26.12.2007 17:03:41 / helgi
Þá er kominn 26. desember og prinsinn fagri fór með sitt föruneyti á jólaball og hittum þar alvöru jólasveina, Þorvaldur dansaði helling í kringum jólatréið með Gunna og síðan Sigga, og stóð ég mig frábærlega á myndavélinni. Eftir ballið skellti ég mér til Þrastar til þess að horfa á Liverpool merja sigur á Halla Kidda (Derby) og endaði leikurinn 1-2. Kvöldið er ennþá óráðið og ætla ég bara að láta það ráðast hvernig það verður.
»
25.12.2007 19:41:44 / helgi
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ég sjálfur, ég á afmæli í dag. Já þá er prinsinn fagri orðinn árinu eldri og á hann að baki 27 ár og ber hann aldurinn ansi vel, lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 19 ára.
»
24.12.2007 13:10:48 / helgi
Ég komst að því í morgun þegar að ég vaknaði, mér til mikillar gleði að það er kominn aðfangadagur og því fæ ég fullt, fullt, fullt af pökkum í kvöld eftir að ég er búinn að borða matinn góða, sem ég í félagi við Júlla eldum. Síjú.
»
23.12.2007 14:12:41 / helgi
Þá hefur prinsinn fagri og hans föruneyti náð á áfangastað sem er Hólmavík. og vorum við komin hingað um 14:30 í gærdag. Dagurinn í dag byrjaði frekar seint hjá okkur, eða um klukkan 11. En engu að síður hefur hann verið vel nýttur, og er ég búinn að fara í 2 veislur þar sem menn og konur hafa lagt skötu sér til munns og var það bara mjög gott. En ekki meira að sinni bæbæ.
»
21.12.2007 21:05:56 / helgi
Þá hefur prinsinn fagri (HELGI JÓHANN) unnið sinn síðasta vinnudag á þessu ári, og hefur hann mikinn áhuga á því að eyða restinni af árinu á hinum yndisfagra og æðislega stað, Hólmavík, og þurfa íbúar Hólmvíkur og nærsveitungar ekki að láta sér bregða ef kauði sést á þessum slóðum.
»
17.12.2007 23:25:46 / helgi
Já á laugardaginn skellti ég mér á tónleika, og voru það hvorki meira né minna en tónleikar með Frostrósum og co. og fannst mér Raggi Bjarna standa uppúr, eða hvað? Kannski var hann ömurlegur og mundi ekki textann sinnnnnnnnnnnnnnnn........ En engu að síður voru þetta geggjaðir tónleikar þar sem Regína Ósk og fatahengið stóðu uppúr. ÞREFALT HÚRRA FYRIR ÞEIM, HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA.
»
03.12.2007 20:36:09 / helgi
Nýr mánuður hefur tekið við af nóvember og heitir "the new one" desember. Sökum veiki, hita, beinverkja og frussandi renniskitu þá hafði ég ekki rænu á að óska honum Gunnari mínum Núma til hamingju með afmælið þann 1. des. og geri ég það þá bara núna, Til hamingju með afmælið kúturinn minn (ef þú lest þetta) en fleira er það ekki að sinni, bæbæ.
»
29.11.2007 14:53:39 / helgi
Já loksins gefur maður sér tíma til þess að setjast niður fyrir framan tölvuna til þess að blogga eitthvað smá. Það er allt eins og það á að vera, fínt í vinnunni, bæði hjá mér og Ingu, Þorvaldur er enn hjá dagmömmu og finnst það alveg æði, en hann byrjar á leikskóla 10. desember. Inga er eitthvað löt við að vinna í síðunni hans eins og ég með mína síðu. En að allt öðru, Liverpool virðast loksins vera komnir í gang og eru að vinna hvern leikinn af öðrum mjög sannfærandi, unnu Porto í gær 4-1 og eru enn taplausir í Úrvalsdeildinni. Jæja ekki meira í bili bæbæ.
»
Síður: 1 2 3 ... 16
|